Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur og myndlistamaður, mun vera merkilegur maður. Hann kom í val-tímann í gær og sagði ótrúlega margt og það var vit í því öllu. Maðurinn tók sig til og prílaði hátt upp álitsstigann hjá mér, þegar hann var kominn eins langt og hann vildi, sofnaði hann. Ég held að hann ætli bara að vera þarna. Ég ætla ekki að endurskrifa fyrirlesturinn sem hann hélt heldur bara mæla með því að fólk skoði það sem hann er að gera og hefur verið að gera.
Í dag fattaði ég að það er bara rúmur mánuður þangað til ég stíg á danska grundu. Nei ég get hvorki sagt þetta né skrifað án þess að það komist upp um brosið sem býr í mér :) Mig langar helst út á morgun, jafnvel á eftir bara. Reyndar hefur tilhugsunin um vinnuna myndað nokkra dropa í svitaformi á ennið á mér og ég samdi litla vísu til að lýsa því:
Gömlu fólki greiða skal
ó fætur með kraumandi sveppi
Mikið verður um niðurhal
ég vona ég end´ekki á Kleppi!
Neinei.. ég segi nú bara svona. Þetta var ekki falleg vísa. Ég efast ekkert um að elliheimilis vinna sé góð reynsla. En ég er ansi hrædd um að mér eigi eftir að finnast það kvöl og pína ef sá eða sú sem ég er að mata eða skeina sé með hausvitið alveg í lagi. En ætli maður fari ekki í eitthvað lífiðerbarasvonaogþaðeralltílagi kóma og komist ágætlega í gegnum þetta.


<< Home