miðvikudagur, júní 02, 2004

Oh það er svo æðislegt eitthvað að vera nývöknuð klukkan hálf fjögur.. ha! Ég get með sönnu sagt að aldrei hef ég aldrei kynnst jafn mikilli óreglu í próftíð og í þeirri sem er ALVEG AÐ KLÁRAST! Ég fattaði að hún er alveg að klárast þegar ég var að skrifa þetta bara ..og nú er ég eins og flóðhestur í afmæli :D eitt próf eftir, þ.e.a.s. af hinni formlegu próftíð.. ég ætla nú samt að lengja þetta aðeins og skella mér í eins og allavega eitt upptökupróf. En Ýdalir verða vonandi heimsóttir í millitíðinni, maður fer nú varla að sleppa þeim núna.. Þýskan var í dag og ég hef það á tilfinningunni að ég hafi bara rúllað henni upp ef ekki þá allavega brotið hana saman.. en það er alveg nóg. Jón Árni kom í gær og var með töflutíma inní kompu fyrir okkur. Það er alveg óhætt að segja að hann hafi reddaði málfræðina algjörlega fyrir mig og er ég að sjálfsögðu mjög þakklát fyrir það. Uppeldisfræði á morgunn.. spurning um að fara að sofa á skikkanlegum tíma :) ..DK eftir viku og tvo!