Fear factor
Ég viðurkenni það alveg að mér fannst þessir þættir sniðugir þegar þeir komu fyrst, svona fyrstu fimm skiptin sem ég horfði en svo fór þetta að missa mark sitt. En eftir jahh allavega tvö ár þá er þetta enn í gangi, og formúlan hefur ekkert breyst! Ljótur þáttur. Hvað er málið með gellurnar í þessum þáttum? Fyrsta þrautin.. yfirleitt alltaf uppá einhverju húsþaki eða einhverstaðar úti. Þær mæta í tvíþrengdum spandex hlýrabol. Fyrir einhverja tilviljun er líka smá vindur úti sem feikir hárinu á þeim léttilega til og frá andlitinu. Þær eru annað hvort hálf skelfdar eða þá að þær séu hörkutól og ætla að taka þetta með trukki. Önnur þrautin.. þá á að éta eitthvað ógeð eða fara ofan í kassa með einhverju ógeði í.. aðal málið er að það er eitthvað ógeðslegt í gangi sem yfirleitt tengist skordýrum. Gellurnar mæta í þríþrengdum spandex hlýrabol og rifnum galla stuttbuxum, flögra upp um strákana sem eru í þessu líka og leika þessa stelpulegu stereo-týpu. Fari yfirleitt að grenja á endanum. Þraut þrjú.. alltaf eitthvað með vatn og hvað þýðir það? Gellurnar koma í bikiníi.. bling bling! Takmarkinu náð.. en það bregst heldur ekki að þær eru allar mjög vanar vatni og hafa annað hvort æft sund í fjölda ára eða þá verið í vatnsfimleikum eða í klappstýruliði fyrir sundliðið(sem hjálpar auðvitað mjög mikið) Nei svona án spaugs.. eru þessir þættir ekki full GERVIlegir til þess að titla sig sem raunveruleikaþætti?


<< Home