Afrekalisti dagsins í dag:
Vaknaði ahalltof seint, aldrei gerst áður enda slagorð mitt: morgunstund gefur gull í mund ..eins og kunnugir ættu að þekkja.
Fór til Bergþóru og drullumixaði bæði leikverk og ljóð, í staðinn fyrir að gera eins og Bergþóra og horfa á svo guðdómlegan þátt. Allir strákarnir í honum voru "ég er að slefa núna" svoohoo flottir í svo ótrúlega passlega þröngum bolum.. nei bíddu.. sveittir í körfubolta.. ahh.. ok ég kom upp um það núna að ég hef augljóslega horft pínu. Engu að síður, tvö verkefni=búin.
Greiddi hárið á Bergþóru, en það hefur ekki verið gert síðan kompan var þrifin síðast.. og það segir sitt.
Jú svo er komið að stærsta afreki dagsins. Við bökuðum köku.. neinei þetter ekki búið, við gerðum líka krem... sem fyllti skálina. Það hefði verið alveg ágætt ef við hefðum bakað átta kökur! En við gerðum bara eina.. og fólk getur vottað, að það sást enginn munur á yfirborði skálarinnar eftir að við settum eins og þurfti á kökuna. Soldið þrollalegar. Löng saga á bak við þetta en í stuttu máli er hún þannig að: Ég hellti hálfum líter af vatni saman við einn pakka af flórsykri ..ætli ég hafi verið eitthvað annars hugar, það gerist samt aldrei þannig að það getur ekki staðist. En jújú það voru alveg til 3 pakkar af flórsykri í viðbót á heimilinu þannig að við fylltumst bjartsýni en hahh! Það var bara alls ekki nóg.. svo við fórum og keyptum tvo til viðbótar. Eftir fimm pakka af flórsykri var þykktin á fyrrum kakósúpunni orðin eitthvað nærri lagi.. kremið var orðið meira líkt kremi en kókómjólk.. Ég viðurkenni alveg að ég er svolítið bitur útí eina spurningu sem ég fékk áðan, af hverju byrjaðirðu ekki bara uppá nýtt? NEI ekki spyrja svona. En já bara til hamingju Lilý fyrir framúrskarandi þrollaskap.. þú ert stjarna..(nei hóra?) Já, takk bara
Hélt sannkallað gleðipartý í kompunni.. til heiðurs kompudýrunum. Á boðstólnum var: jú kakan og hahh kerrrremið. Allt kremið. Fólki var beint á að fá sé meira krem á kökusneiðina sína ef því fannst eitthvað skorta af því. Þetta endaði þannig að fólk þurfti að leita að kökunni í kreminu sínu. Gott partý, og gott fólk sem ég á eftir að sakna.. svo mikið sko. Undarlegt að hugsa til þess að það verði enginn Grímur sem girðir niðrum sig þegar það kemur þögn, enginn Salvar sem háir símaatsstríð á milli kompa og stekkur jafnvel öskrandi á mann og annan þegar maður á síst von á því, enginn Helgi sem útskýrir brandara á blaði og bara yfir höfuð enginn x-ari sem liggur hrjótandi inní Munins kompu.. já þetter komið gott af væmninni bara.. hætta núna Lilý.. hætta


<< Home