sunnudagur, júní 06, 2004

Læra og læra og læra.. djöfull er þetta orðið þreytandi eitthvað. Búin með þessi leiðindi (sem virðast ætla að endast að eilífu en gera það augljóslega ekki ef marka má þessa setningu) á þriðjudaginn! Og fimm dagar hehey! Dagurinn í dag einkennist af kökubakstri og blessblessi.. Elfa er að fara til Portúgal á morgunn bara og ég sé ekki í skottið á henni eins og svo mörgum öðrum fyrr en á Krít svo hún fær sinn skammt af súkkulaðiköku með jarðaberjum og rjóma í kvöld (hún heimtaði það).. já ég var líka að setja inn gamla kommentakerfið sem er fyrir fleiri en bara þá sem eru í blogspot elítunni ..mesti munur! ..mellon annars ætla ég núna bara að halda áfram sögulestri.. party