Í dag sótti ég um þetta svokallaða svarta kort, sem ég veit einmitt ekkert hvernig getur gagnast mér fyrir utan það að fá 8000 krónur upp í útskriftarferðina, sem styttist einmitt óðum í og fólk er farið að pæla mikið og sumir jafnvel of mikið í herbergjaskiptum og hvaða rúm verði þægilegust.. sóða sóða ;) En já til þess að fá þetta kort áður en ég fer út fór ég upp í brekkuútibú Landsbankans. Þar bauð mér Birgir Björn Svavarsson útibústjóri, (eða hvað hann titlar sig blessaður) inn á skrifstofu til sín. Við skulum athuga það að þetta er uppí Kaupangi sem er orðin ansi sjúskuð verslunarlengja verður að segjast. En þrátt fyrir það að málningin á veggjum þessarar skrifstofu væri farin að gulna og viftan sem er tengd einhvernveginn útum gluggan öskri svo hátt að maður getur varla tjáð sig, þá er íburðurinn í öllu þarna inni svo fáránlega mikill að maður fer bara hjá sér, en hlær samt inní sér útaf gríðarlegu samræmisleysi. Það bara passar ekki að hafa einhver fimm fokdýr málverk og skrifborð uppá nokkra hundrað þúsundkalla inní einhverri sjúskaðri kompu uppí Kaupangi.. þetta er svo plebbalegt sko. Svo spurði ég mig, er þetta svona í Sparisjóðnum? Nei. Er þetta svona í Íslandsbanka? Neibb ekki heldur.. gefur mér að Landsbankinn sé afar plebbaleg stofnun en ef þeir ætla eitthvað að vera plebbalegir þá getur Kaupangskompan ekki verið rétti staðurinn.


<< Home