föstudagur, júní 11, 2004

Neihh suður á morgun og út á hinn! Ég er ekki að meðtaka þetta. Helmingurinn af hjartanu í mér er búinn að vera í Danmörku í allan vetur og eftir ekki einu sinni tvo daga ætla ég að fara og smella honum saman við hinn þannig að hjartað í mér slái rétt og ég geti brosað eins og einhver þrolli.. Íbúðarmál eru alveg komin á hreint og við verðum í 20 fermetra svítu með eldhúskrók, baðherbergi, sjónvarp, græjum og sófa. Ég á reyndar eftir að sjá íbúðina en hey hún er í Kaupmannahöfn þannig að mér er sama. Hún er líka staðsett á kollegiinu sem ég bjó á þegar ég var fimm ára á hjólaskautum, troðandi kirsuberjum í nefið á mér. Nóg um það, ég get hvort sem er ekki líst því almennilega hvað ég hlakka til.. og svo stutt sko! En nú er ég búin að vera að kveðja fólk svona síðustu daga. Ég sé það ekki fyrr en eftir tvo og hálfan mánuð, sem er soldið langur tími þó hann sé fljótur að líða. Maður vinkar og segir: ,,Hey! Við sjáumst á Krít! :D" ..það er svo óraunverulegt. Spenningurinn í maganum er farinn að kíkja uppí hálsakot og ég get ekki þjappað meira! Þá erum við að tala um tvöfaldan spenning, Danmörk og Krít.. Sjokolade pålægg.. það er allt sem segja þarf :) En ég var nú að koma af Dátanum bara rétt áðan og þar hitti ég Heklu, sem er fyrst ég er nú að tala um hana, svo ótrúlega yndisleg. Hún er að vinna á Hlíð og ég fékk að heyra nokkrar reynslusögur frá henni, svo var hún að segja mér hvaða tækni væri best við skeininganar.. gott að fá smá svona upplýsingar svo maður komi nú ekki sem algjör grænjaxl í þetta. Nei ég hlakka bara til, þetta verður eflaust bara krúttlegt fólk sem ræður ekki við fínhreyfingarnar. Eða ég ætla allavega að telja mér trú um það.. þangað til annað kemur í ljós, neih hvað er þetta.. það er ekki séns að þetta séu einhver monster með krónískan niðurgang, ég trúi því ekki.. eða þú veist það gæti verið.. ég vona bara að ég þurfi ekki að laxera neinn :S aaaah sjæse.. nú er ég farin að hugsa of mikið um þetta! Og sjá þetta fyrir mér... ó guð minn góður! Ég hlýt að vinna í lottóinu í haust eftir allan þennan kúk. Líta á björtu hliðarnar Lilý, líta á þær björtu :D Kannski kemst ég að því að gamlar konur kúka rósablöðum, hver veit?