Möbler
Jahh haldiði að það sé ekki færsla númer 401. Ég skal sko segj'ykkur það!
Hér er ennþá snjór og fallegt veður, ég búin að kaupa mér íveranleg stígvél á útsölu.. spottprís svokölluðum og uni sæl við mitt. Arka hér um göturnar með hlýjar tær og renn ekki nema einstöku sinnum. Stórkostleg eru þau stígvélin. Það er ekki laust við að ég væri til í að skemmta mér á skíðum, en ætli maður geymi það ekki eitthvað. Ég komst einu sinni í fjallið heima og það nærði fjallagarpinn sem skildi. Enda fagurt á að líta þegar horft er niður úr Hlíðarfjalli. Yndislegur heimabærinn sem blasir við manni í öllum sínum dýrðarljóma. Nóg um það.
Ég er búin að splæsa á mig skrifborði. Mublan kostaði heilar 50 krónur sænskar. Sem gera næpar 500 íslenskar. Það mætti orða það svo að það sé gjöf en ekki gjald. Enda hló ég þegar ég sá auglýsinguna og það kom tryllingslegur tónn á hláturinn þegar ég var búin að ræða við manninn sem seldi mér það. Hann nefnilega býr í 30 km fjarlægð hérna frá Örebro og ég hefði átt í einhverjum erfiðleikum líklega með að bera það á milli. Þannig að hann bauðst til að skutla því til mín bara. Sem hann og gerði. Fyrir 50 krónur. Ég hinsvegar er svo rausnarlegur námsmaður að ég ákvað að láta hann fá heilar 100 svo hann allavega ætti uppí bensínið. Þetta er það sem maður kallar að vera snäll, altså maðurinn.
Aðra sögu er að segja af rúminu sem ég keypti um daginn. Notað til tveggja ára. Ég fékk með mér fylgdarlið og við bárum gripinn hérna 1 og hálfan km líklega. Það var agalega hressandi. Trilluðum okkur með það fram hjá Súpermarkaðinum og í gegnum skólalóðina þar sem börnin þyrptust að okkur eins og mý að mykju og ætluðu aldeilis að fá að kúra sig í frímínútunum. Fyndið, nei ekki fyndið. Ekki fyndið að kjaga sveittur með rúm í höndunum og að 40 krakkar ætli að hoppa uppá það. En þetta bjargaðist, við bentum þeim vinsamlegast á að vera ekki með þessa vitleysu og leyfa okkur að halda göngunni áfram. En ekki nóg með það, rúmið kom í hús og ekki leið á löngu þar til upp gaus þessi agalega svitalykt af rúminu. Halda mætti að grís hafi legið þar í tvö ár og hreinlega ausið af sér svita ofan í dýnuna. Svo yfirdýnan var tekin í sundur og böðuð í þrígang í sitthvoru lagi. Þurrkuð og stokin og nú er hún fín, lyktar af eplum meira að segja. Mmm mm.
En skrifborðið fékk ég í gær sem og þessa undurfallegu mynd af tveimur íslenskum fjöllum eftir Brynju beib, nú á ég vistlegt herbergi. Meira að segja búin að setja upp loftljós. Valur er maður sem kallaður er den snälla. Hann skutlaðist með okkur sambýlingana í ikea í gær og við fengum enn meiri útrás fyrir húsgagnagleðinni. Þegar heim var komið settum við saman baðhyllu og sturtuhengisstöng. Það var hægara sagt en gert, en við erum konur sem kunnum (ogikealeiðbeiningarnarklikkaekki). Svo því var pússað saman á mettíma.


Myndir myndir myndir má finna á þar til gerðri myndasíðu. Undir Svíþjóð 2007 Janúar. Ég var að setja inn 3 ný albúm :)


<< Home