þriðjudagur, janúar 14, 2003

nú er ég búin að klifra heim af bókasafninu.. eftir 20 bls. lestur já bara 20!!! ertað gera grín að mér!? hættu!! þó ég lesi hægt þá þýðir það ekki að ég sé ofþroskaður banani!!


..bara að sýna að ég kunni að gera bil þó ég lesi hægt Börg veit það! ..nei ok. ég er ekkert svona pirruð þó ég sé að fara í sögupróf og þó ég þurfi að lesa 200 bls í viðbót við þessar 20 sem ég las áðan! ..ok ég er svolítið pirruð en ég hristi það af mér.. ég varð mega glöð í morgun það var til venjulegt cheerios :)
ég hef stundum verið að velta því fyrir mér þegar ég er að labba eitthvert... hvernig fólk horfir þegar það labbar.. sumir horfa niður.. á tærnar á sér eins og þeir séu að velta fyrir sér hvort þeir hafi reimað eða hvort þeir sjái ofsjónir því þeim finnist þeir alltaf vera að stíga á reimarnar en samt eru þær reimaðar af einhverjum furðulegum ástæðum.. eða jafnvel að svekkja sig á því að þeir hafi uppgötvað kartnögl kvöldið áður.. eða jafnvel eru þeir að fatta að þeir steingleymdu að klippa táneglurnar og nú stingast þær í nærliggjandi tær..
en aðrir horfa í kringum sig og beint áfram.. líta í kringum sig eins og þeir séu að skoða umhverfi sem þeir hafa aldrei séð áður og pæla í hlutum sem þeir hafa kannski séð á hverjum degi í 10 ár eins og grein á birkitré sé orðinn merkileg allt í einu þennan dag og þann næsta er pælt í hrífuskafti og öllu sem það leiðir af sér..
svo eru aðrir sem horfa til himins.. horfðu til himins lalalala.. eitthvað kannski eru þeir alveg sona hæ on læf eða þá eru þeir í skýjaleik.. eða kannski eru þeir að pæla í þeirri þaulhugsuðu spurningu, af hverju himininn sé blár.. og hvað sé utan við jörðina og hvað sé utan um heiminn og hvað sé þar fyrir utan og hver sé tilgangur lífsins..


hahh það er margt sem kemur til greina að fólk sé að hugsa þegar það er úti að labba eða er að labba á milli staða.. en pæliði af öllu þessu þá er kannski afar sorglegt að hugsa um hvað annað fólk er að hugsa um ;)
SAGA!!!