sunnudagur, janúar 05, 2003

rétt búin að borða.. lærissneiðar í matinn og almennar hugleiðingar fjölskyldunnar voru sveimandi yfir matnum.. ég var eitthvað að horfa í kringum mig í eldhúsinu og sá þá nýkeypta banana sem voru svo grænir að maður hefði getað haldið að þetta væru gúrkur.. og ég hafði orð á því hvað þetta voru rosalega grænir bananar en þetta fór eitthvað fyrir brjóstið á bróðir mínum honum Ásgeiri Andra en hann reyndi að sannfæra mig um að það væri nú bara ekkert skrítið sko... hvort ég væri eitthvað vitlaus! Það er nú nokkuð augljóst Lilý að það sem er grænt er yfirleitt grænt ha.. já er það Ásgeir? Svo fór ég eitthvað að snúa þessu uppí að bananar væru nú yfirleitt gulir samkvæmt minni vitund en þá fattaði litla skottið að hann hefði nú verið að trana vitsmunum sínum á framfæri við vitlaust tilefni ;) ..og sneri útúr með því að segja að bananarnir væru grulir =)