Stefán er farinn áleiðis til Tansaniu! já ekkert minna en það.. ahh það var mega stjörnubjart í gærkvöldi eða nótt.. sorglegt hvað maður sér lítinn hluta af stjörnubirtunni (segir maður stjörnubirta?) inní bænum útaf öllum ljósunum.. við keyrðum upp að dýraspítala og hringinn að Lónsá og Lónsbakka og þar og hittum hesta og stjörnur á leiðinni hestarnir vildu ekki mikið smakka salsaflögurnar sem við vorum með en ég hef líka heyrt að þessi hross séu soddan gikkir þannig að mar tekur það ekkert nærri sér. Ágætis kvöld í gær :) og ég vaknaði með hálsbólgu kl 11 í morgun. Hey ég þarf að þjótta.. einstaklingurinn og samfélagið er að kalla hana vantar einhvern til að sofa yfir sér ;)


<< Home