mánudagur, júní 09, 2003

Ég fór í bestu útileguna í gær =) það var svo gaman.. við fórum þrjár (anna, heiðrún og ég) af stað út í Leynishóla klukkan 11 um kvöldið.. þetta var eiginlega svona skemmtileg skyndiákvörðun.. þegar við komum á staðinn var kvöldsólin farin að syngja sitt síðasta en málaði himininn æðislega bleik-appelsínugulan í kveðjuskyni.. svo vinkuðum við í einhverja frakka sem komu með hjólin sín í rútu og voru eitthvað að tjútta í rútunni. Við fundum besta og notalegasta staðinn held ég hann var reyndar pínu langt frá bílnum (það var keðja fyrir svo það var ekki hægt að keyra alveg alla leið) svo það var doltið erfitt að bera allt þunga dótið fullt af sængum og koddum ahhh! Vi' sofnuðum frekar seint.. vorum bara e-ð að tripla í grasinu í góða veðrinu og allt í einu kom sólin upp aftur og hún var alveg gulllituð :) Í dag eftir að við vöknuðum lágum við í sólbaði ýmist sofandi eða vakandi og þegar sólin fór náðum við bara í sængurnar okkar og og héldum áfram að vera í sólbaði =) Alletides útilega og ég held ég hafi brunnið í framan..