fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Hehey! Komin heim bara og sit á náttfötunum inní herbos með lappið fyrir framan mig og föt allt í kringum mig. Ef það er eitthvað leiðinlegt í heiminum þá hlýtur fólk að vera sammál um það að það er hundleiðilegt að taka uppúr töskum og hvað þá þegar maður veit að um leið og maður er búin að unpakka og þvo öll töskukrumpuðu fötin þá þarf maður að pakka aftur fyrir næstu ferð! Fatavesenið er ekki búið að svo stöddu.. nú er maður nýkomin heim úr verslunarleiðangri sem stóð í góða tvo mánuði og fataskápurinn er á stærð við eldspítnastokk. Hvað gerir maður þá? Jahh horfir á hann opinn og fullan og gengur ekki frá fötunum ..þessvegna liggja þau á víð og dreif í kringum mann. Gersamlega vonlaust. Ég held að ég verði að koma með byltingu á heimilinu og breyta geymslunni í fataherbergi. En á hinn bóginn vil ég ekki lykta eins og fúin spíta, þannig að það fellur um sjálft sig og ég enda á því að geyma þessa tugi kílóa fata í pappakössum. Til hamingu. En innilega og hjartanlega til hamingju með það að hafa komist með 35 kíló af fötum heim frá Danmörku án þess nb. að borga krónu í yfirvigt. Stærsta lygi þessa dags 24. ágúst var þegar ég tjekkaði mig inn með eina litla tösku í handfarangri og kinkaði ákaft kolli til konunnar þegar hún spurði hvort þetta væri eini handfarangurinn minn. Taskan sjálf vóg 21 kíló sem er einu of mikið en það rétt slapp útaf hógværum handfarangri. Þegar ég var komin með bording pass hljóp ég yfir þvert og endilangt terminalið til bergþóru þar sem hún sat með hinar 4 handfarangurstöskurnar mínar. Sæl var ég með svarta tungu þann daginn! Útaf þessum klækjabrögðum okkar beg endaði flugferðin þannig að ég sat í sæti 3a og beg í 26f hefðum ekki getað verið lengra frá hvor annari.. en ég meina hey! Við fengum í staðinn að spjalla við eftirvæntingafulla dani sem voru að fara í sinn fyrsta túr til Íslands.. það virðist vera svo að við höfum fengið nákvæmlega sömu samræður.. sáum prógrammið fyrir túrinn, heyrðum sögur af barnabörnunum og margt fleira unaðslegt.. Hin lygi dagsins var þegar ég hringdi í elf fyrir utan hjá Baldvini og þóttist vera full í Danmörku til að vita hvar hún væri og hvað hún væri að gera.. þetta gekk eftir og við hentum steinum og berjum í gluggann hjá henni og sungum afmælissönginn á dönsku. Kæti og læti.. elfa trúði ekki sínum eigin augum og þaut til dyra á brókinni með bros á vör. Gaman að koma heim :D