Jæja.. (alltaf góð byrjun). Ég var ekki búin að koma með góða sögu hérna um það þegar ég komst að því að netið var komið í íbúðina mína.. og ég held ég sleppi þeirri sögu, þó góð sé.. jafnvel 9,5! Nú er ég komin samt sem áður komin með netið og blóm í íbúðina mína og allt orðið mega heimó, er samt ansi hrædd um að umpottun þurfi að eiga sér stað því þessir pottar sem þau eru í greyin eru ekki mikið fyrir augað.. so sorry pots. Það mun þó bíða betri tíma.
Í dag skráði ég mig loksins í frönskuskóla og hann byrjar næsta föstudag (þetta var fyrir þig móðir ;)), þegar ég stóð þarna eins og kjáni og bað um námskeið fyrir byrjendur tók ég eftir öðrum bás sem var fyrir skráningu í nútímadans, ég tók konuna sem sat við básinn á spjall.. hún var ansi treg í enskunni en með hjálp annarar konu náði ég því hvert ég ætti að mæta til að dansa og hvernig ég ætti að haga mér í þessu.. spurning hvernig það gengur að skilja leiðbeiningarnar í þessum tímum.. þetta verður forvitnilegt!
Annað sem er ofarlega í huga mér þessa stundina er að sjálfsögðu Rússland og ég er ekki frá því að það sé komin flugáætlun! Ég fer frá Nice til Köben og frá Köben til Osló, þar hitti ég stelpurnar :), frá Osló til Moskvu.. hehey verð þar í viku í sér prentuðum nuddbol og cintamani peysu úlalla á 1700 herbergja hóteli með fjöldanum öllum af búðum og veitingastöðum svo er þarna snyrtistofa líka.. ég held þetta sé spurning um að skella sér í vísindalegt dekur þar á bæ! Svo má ekki gleyma diskótekinu sem er til húsa á þessu hóteli líka. Þannig að það lítur allt út fyrir að við munum ekki sjá mikið meira af Moskvunni, þarna er allt til taks! Þegar þessari unaðsveku (til heiðurs ákveðnum manni) er svo lokið er stefnan tekin á Amsterdam og þaðan til Nice. Fimm flugvellir munu s.s. koma við sögu í þessari ferð minni hvorki meira né minna. Get ekki sagt annað en að ég hlakki afskaplega mikið til þess að fljúga um loftin blá með millilendinu í Köben. Alls ekki slæmt, alls ekki.
Nú ætla ég hins vegar að taka til við eldamennskuna og jafnvel grípa í heklunál.. nema ég bregði mér yfir til vísindavinar míns og nágranna.. hver veit :)


<< Home