fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Jaíjaaaaa a.. haaa.. er gaman?

Nei það er ekki gaman, ég er á næturvakt.. ótrúlega lúin og kom vælandi í vinnuna eins og lítill kjáni. Ef það er eitthvað sem leggst á sálina í mér þá er það að kveðja fólk. Mér líður alltaf eins og að feitur göltur hlammi sér ofan á mig, veit ekki af hverju. Dagurinn í dag er búin að vera ein standandi svínastía. Byrjaði á kaffiboði ala mamma (sem ég þarf einmitt að segja bless við á morgun, guð hjálpi mér!) um leið og ég vaknaði sem var klukkan tvö.. næturvakt gefur löglega afsökun til að sofa á daginn. Í kaffiboðið komu hinir ýmsu sprelligosar og ég fékk meira að segja eina kveðjugjöf, Ulrike kom með Neyðarumslag, fullt af plástrum sem eiga að duga við hinum ýmsu kvillum.. þeir munu eflaust koma að góðum notum í vetur. Eftir kaffiboðið var lokahönd lögð á pökkunina og ég held ég hafi aldrei verið búin að pakka svona snemma. Algjörlega móður minni að þakka að ég sé ekki að fara að byrja á því þegar ég kem heim á eftir. Taskan, aðaltaskan vegur lítil 24 kíló sem segir 4 kíló í yfirvigt.. ég er búin að leggja nótt við dag í æfingar á hvolpaaugnaráði.. sjáum hvað setur. Handfarangurinn skipa fjórar töskur sem ég hef ekki hugmynd um hvað eru þungar, en þær eru þungar (til hamingju!) og móðirin er búin að taka það að sér að senda hin 40 kílóin til mín í skipapósti þegar ég er komin út. Sennilega eru þetta 70 kíló sem fylgja mér.. hvað er það á milli landa? Nú öll kílóin komust að endingu á sinn stað og ég mætti alltof seint í matarboð til elf uppáhaldsfrænku, hell var mætt á undan mér og þær voru búnar að borða.. sátu á meltunni þegar ég kom og ropuðu. Lilja elskan var að koma frá Vín í dag og ég rétt náði að sjá hana aðeins, hún kom eins og engill af himnum ofan með fríhafnargotterí og góðar sögur af sumrinu. Gaf mér mynd sem lýsir fegurð hennar og bergþóru eins og þegar hún er hvað mest. Myndin tryggir það að ég geti hlegið úr mér lifrinni þó ég sakni þeirra. Sjitt hvað þið eruð sætar stelpur! En, ég er tilbúin í tjúttið eins og ég stend og mun bruna suður um leið og ég er búin á vakt, sem er klukkan átta og svo svíf ég á vit ævintýranna klukkan hálf fjögur.

Smá fréttir af Russian Cuddle:
Það er óhætt að segja að frægðar rjóminn hafi flotið yfir gærdeginum. Við luv stöllur kynntum verkefnið okkar á blaðamannafundi í Íslandsbanka í gær. Mikill mannfögnuður var saman kominn til að hlýða á þennan fund sem fór allur fram á ensku og var æfing fyrir keppnina í Rússlandi. Eftir þennan ágætlega heppnaða fund drógum við andann og nutum þess að vera ekki ofurstressaðar í smá stund. Um kvöldið fórum við svo í útvarpsviðtal á bláu könnuna og það kom í útvarpinu í morgun, í þættinum Samfélag í nærmynd á rás1, en ég var sofandi.. hlusta bara á það á netinu síðar þegar tækifæri gefst.


Annars er skömm að því að eiga enga kínverska msn vini.. Íslendingar eru ekki mikið fyrir það að vera online klukkan hálf 6.