The Young Scientists Contest in Moscow 2005
Jesús.. hvað erum við að fara útí, bara fyrirsögnin lætur mig fá gæsahúð.
Við ætlum að taka þátt í þessu með þetta! Haha já hann Dimitri sem verður búinn að finna lækningu við HIV mun sennilega hlægja þegar hann labbar framhjá básnum okkar, líta okkur hornauga og fá í staðinn glóðurauga. Gaman að því að við séum að fara þarna eins og álfar útúr hól sem munum varla skilja hin verkefnin í keppninni.. eða hvað veit maður, þetta lítur þannig út. Þetta lítur eiginlega skelfilega út. En þá er það bara að pumpa upp metnaðinn, húmorinn og lesa dagskránna á hverju kvöldi, dagskráin er ekki slæm..
Ætli maður fari ekki með prumpublöðruna og allt hitt hrekkjudótið út og reyni að hafa svolítið gaman að þessu!


<< Home