sunnudagur, júlí 03, 2005

Hehey! Vá þrusuborgarhelgi liðin undir lok. Við fórum með morgunflugi suður á föstudaginn, ég, Una og Valdís.. brunuðum á bílaleigubílnum (soldið merkilegar) niðrí háskóla og þar hittum við Björk Håkonson verkefnastjóra Young scientist på Island við ræddum þar eitt og annað við hana en héldum svo á vit ævintýrana hjá Marel. Marel er fyrirtækið sem ætlar að hjálpa okkur að gera þetta allt þannig að við getum verið roknar stoltar af þessu og jafnvel að koma fótum undir okkur í framleiðslu á nuddgallanum. Jeij! Marel er mjög fágað og dúndur plebbalegt fyrirtæki.. við vorum leiddar inní fundarsal af Ingólfi sem stormaði þarna áfram ásamt ritaranum sínum. I salnum settumst við í einhverja hásætis skrifborðsstóla við hringborð og vorum í hæstalagi plebbalegar með krosslagðar lappir. Ingólfur er nýbakaður faðir og ljómaði allur yfir verkefninu sem gladdi okkar litlu hjörtu. Það stefnir allt í það að nuddgallinn fari í jahh allavega einhverja framleiðslu.. strokurnar verð silkiprentaðar á samfelluna og grafískur hönnuður fær það verk að hanna leiðbeiningarbæklinginn. Hver veit nema við verðum með gallan á handverkssýninguni á Hrafnagili í ágúst.. og að öllum líkindum poppa andlit okkar upp á skjánum einn morguninn í september þegar við mætum ferskar í Ísland í bítið. Það er full dagskrá framundan með verkefnið og ég get ekki sagt annað en ég sé spennt og áköf mjög yfir þessu öllu. Leiðinlegt samt að ég verði farin til Frakklands mánuði fyrir keppnina í Moskvu þannig að ég mun missa af stórum hluta ferlisins.. eins og æfingarblaðamannafundi sem fer fram á ensku.. ég geri mér enga grein fyrir því hversu stórt þetta er og hvað er hvað og hvað snýr hvernig. Allamalla. En jæja.. þetta er allavega allt á þeysandi uppsiglingu hjá okkur. Ánægjulegt mjög. En já eftir þennan dúndur fund með Ingólfi fórum við í kringluna.. þar verslaði ég frá mér allt vit eins og plön gerðu ráð fyrir.. og hafði ánægju af. Keypti kjól, geisladiska, peysu, skó, snyrtidót og ég veit ekki hvað og hvað. Valdís flaug aftur heim þennan sama dag og við skutluðum tjellingunni útá flugvöll og tættum götur bæjarins á leiði okkar í Ikea enda spyrnukonur miklar. Je. Það tók okkur ekki nema einn og hálfan tíma að finna Ikea. Þar keypti ég kerti.. gott að við leituðum svona lengi því maður fær bara hvergi annarstaðar kerti á landinu og jafnvel í heiminum. Jæja við enduðum allavega á Sóleyjargötunni þar sem við áttum heima þessar tvær nætur. Þetta kvöldið gerðum við herbergið klárlega að okkar herbergi. Klipptum niður kreppappír í ræmur (rendur) og hengdum upp í allt loftið, blésum upp 20 blöðrur og rendum okkur um gólfið.. þema helgarinnar var röndótt. Við skildum Halla eftir heima, fórum niðrí bæ og hrisstum á okkur rassinn þetta föstudagskvöld aðalega inn á Hressó þar sem túristi með sólheimaglott hékk utan í okkur allan tíman og var ekki að fatta af hverju við vorum alltaf að færa okkur til á dansgólfinu. Fínn staður en viðbjóðslegt nafn. Hressó. Hressingarskálinn.. hresst. Já þetta var ekki leiðinlegt.. eða ekki þar til við fengum okkur hlölla sem eitthvað fíflið hafði troðið ananasbitum inní á víð og dreif um bátinn og sett súrmjólk í staðinn fyrir sósu.. jæja við sofnuðum sælar og vöknuðum hlægjandi að borðunum í loftinu sem fylltu herbergið af litum og gleði. Það tók sinn tíma að vakna eins og oft vill verða.. en þegar við vorum vaknaðar var bara eitt sem kom upp í huganum Wig Wam.. ójá Wiggidi diggidi wam bam tam tryllti lýðinn um kvöldið og mér hefur sjaldan leiðst jafn lítið. Sjæt hvað það var gaman. Söngvarinn var eins og endranær óviðjafnanlega kynþokkafullur og útataður í spandexklæðnaði harrr.. Halli var aftur skilinn eftir heima og var fremur súr á svip en glotti þó út í annað.. hann á það til blessaður. Þetta var óendanlega gaman já gaman gaman og má sjá myndir úr fjölmennu fyrirpartí á myndasíðunni minni og bara frá helginni almennt. Ótrúlegt samt hvað margir gestirnir í þessu partýi okkar voru miklir airheads.. jiii. En svona er það bara.. sumir eru með lítið annað en loft milli eyrnanna. Já svo kynntist ég líka hressum leigubílstjóra sem var tilbúinn til að taka þátt í BA rannsóknarverkefninu mínu sem ég mun framkvæma ef ég skyldi fara í félagsfræðinám. Leigubílstjórar vita nefnilega ótrúlegustu hluti. Jere.. þetter orðið alltof langt.. það les þetta sennilega engin nema Una ;)