Kom heim úr borginni í gær.. þessir dagar fyrir sunnan voru unaður. Ég veit ekki hvort það var það að við sofnuðum í sólbaði í hljómskálagarðinum snemma á sunnudagsmorgni, eða útaf því að við sáum túrista liggja í grasinu fyrir utan kaffihúsið okkar að kela, eða það þegar ég sat í strætóskýlinu fyrir utan smáralind og át salatbar þegar kona með bjagaða íslensku sagði við mig með bros á vör í bleikri úlpu vegrði þégr að góðu og hlammaði sér svo við hliðina á mér, kannski var það útaf stætóbílstjórnanum sem var svo flörtí við mig að hann ætlaði að flytja norður til Akureyrar á daginn eftir, eða kannski vegna þess að við sólveig átum blauta pylsu í rigningunni (rigning í reykjavík.. haaaaa?!) á leiðinni heim af málþinginu með blöðrur á tánum í blautum kínaskóm, eða jafnvel útaf konunni sem gekk á undan mér upp laugarveginn, með úfið rautt hár, prumpandi trekk í trekk svo hátt og mikið að rassinn á henni hrisstist.. en hvað sem það var þá allavega leið mér eins og frjálsum fugli.. mér leið eitthvað voðalega mikið eins og ég væri í danmörku.


<< Home