sunnudagur, apríl 17, 2005

Já já já já.. mér fannst sigur atriðið í söngkeppninni í kvöld uuuunaður. Mér fannst gellan svöl, hún söng vel og atriðið var flott. Takk fyrir túkall, traktor og tíaur.. Eyrún Unnarsdóttir.. hún vann gæsahúðarkeppnina og varð valdur af votleika um augu. Það er bara eitthvað við Eyrúnu, röddina í henni og hvernig hún notar hana.. ég hlusta ekki á hana án þess að klökna. Fegurðin sem þessi eina manneskja skapar er óendanleg. Úff.. en söngkeppnin kláraðist nú og við tók tryllt dansiball með buff. Það var ótrúlegt. Ég var með Bebbu og Örl sem ætti að segja fólk að ég var staðsett upp við sviðið á milli spengilegra ungmeyja sem öskruðu hvor í kapp við aðra: Zeppelin!!!! Jere.. var það sem ég hugsaði þegar ég horfði á Pétur.. bebba hugsaði aftur voða lítið og bara sagði. Til hamingju með þetta kvöld, til hamingju með þessa helgi, ..það er bara vika! Til hamingju með það og til hamingju yfir höfuð!