þriðjudagur, mars 29, 2005

Jahérna hér! Ef páskarnir eru ekki að vera búnir bara.. ég get svarið það. Þetta svokallaða páskafrí einkenndist ekki af miklu fríi neitt neinei.. en svona þykist maður vilja hafa það. Nú vinn ég á veitingastað, andrúmsloftið í vinnunni er létt og þægilegt, samstarfsfólkið steikt og skemmtilegt en þvílík sóun á annars afar dýrmætum tíma. Ég get ekki að því gert, en þegar ég er að vinna þá hugsa ég um það hvað það er sem ég er að gera.. og hvað er ég að gera? Ég er að færa fólki mat. Fólk sem fer út að borða er yfirleitt fullfært um það að bjarga sér sjálft. Það er ekkert að því, það getur í laaaang.. jah öllum mínum tilfellum hingað til sjálft gengið og þar af leiðandi náð í matinn sinn sjálft. Þetta segir mér að starf mitt sé fáránlegt. Mér leiðist að hugsa um það að ég sé ekki að gera neitt af viti og að ég sé að fá borgað fyrir einhvern óþarfa. En sem betur fer er fólk upp til hópa afar almennilegt og ánægjulegt að eiga við þau þessi samskipti, bjóða þau velkomin, taka niður pöntun, færa þeim mat, spyrja hvernig smakkist.. segja tvo til þrjá lélega brandara.. hlægja að eigin ófyndni, taka til eftir þau og þakka fyrir komuna.. brosa og hugsa hvað fólk sé yndælt. En svo kemur líka fyrir að maður engist um yfir fólki sem slæðist inn.. nú verður tekið dæmi frá páskunum..

Ég er stödd bakvið í hver er maðurinn.. hurðin fram í sal er opinn og ég heyri að einhver kemur inn, ég fer fram í sal og sé engan.. finn það þó á lyktinni að einhver er þarna og svo sé ég hreyfingu.. tek þá ákvörðun að bjóða góða kvöldið.. og fæ svar.. mér bregður eilítið.. átti ekki von á svari frekar en mállaus þari.. ég hleyp eitthvert inní sal til að vera viss um að ég sé á undan þessu dularfulla ósýnilega fólki.. býð þeim að setjast og þau gera það.. þegar það er komið kertaljós á borðið sé ég loksins glitta í þetta fólk og geri mér grein fyrir því að þau hafa stórlega ofnotað brúnkusmyrslin, þeim stekkur ekki bros á vör og byrja samstundis að spyrja..

Þeldökki hvíti maðurinn: Eru hrísgrjónin söltuð?
Ég ..kem með aulabrosið og segji svona meðal jússulega: jiii ég hef nú bara ekki einu sinni hugsað útí það! hehh.. en ég skal spyrja.
Ég komin að vörmu spori: Neibb ekkert salt í grjónunum!
Gaurinn sem lyktar eins og ljósastofa: Notiði einhver krydd?
Ég: Já.. (ert'að grínast?)
Bjössi búrhvals bæseppi (mjög alvarlegur): Er einhver möguleiki á að fá steikta kjúklingabringu, án olíu og krydds?
Ég: Bara alveg þurra..?
Bjössi (horfir á mig og sveiflar hausnum eins og maður gerir stundum þegar maður er svalur): Já
Ég: jahh.. það hlýtur nú að vera.. viljiði enga sósu með?
Bjössi (lítur niður á borðið): Nei
Ég: viljiði ekkert með?
Bjössi (lítur á mig): Nei
Ég (þori varla að spyrja en tel það þó óhætt): ferskt grænmeti?
Bjössi (sveiflar hausnum aftur setur hálf stút á varirnar og horfir á mig): tjaaaaa.. jájá.

Okey.. nú var komið að mér að eyða korteri í það að útskýra fyrir olíu- og kryddglöðum kínverskum manni sem er hvorki talandi né skiljandi á íslensku eða ensku að hann ætti að þurrsteikja kjúklingabringu. ,,No oil" var sagt tíu sinnum, ég fimm sinnum og kínverjinn fimm sinnum.. (fáránlegt það að kínverjar virðast ná því sem maður reynir að útskýra ef maður segir það nógu oft) ..kínverjinn varð reiður og skildi ekki hvað var að fólkinu.. en fékkst þó til að elda herlegheitin. Það kom mér ekki á óvart að ég heyrði engar matarstunur úr horninu sem þau földu sig í.. enda myndi ég ekki stynja yfir þurrum kjúklingi. En nú spyr maður sig.. af hverju fer svona fólk út að borða? Hvað þá á stað þar sem maturinn syndir í olíu? Mér finnst þetta mjög dularfullt því það er til nóg af búðum sem er hægt að kaupa mat í og vesenast við að fara heim og gera ekkert við hann áður en maður étur hann!
Ja hérna hér.. alla mína daga!