Mmmmm ég var að koma heim úr rosalega huggulegu matarboði. Óskipulögðu og æðislegu. Allt sem er ákveðið með litlum sem engum fyrirvara reynist verða dásamlegt. Elfa bauð í mat og kunnugir vita að hún er meistarakokkur og góður brytjari, guði sé lof fyrir fólk sem kann að brytja. Það er margt minna pirrandi en of stórir paprikubitar.
Hmmm.. það sem er svona upp og ofan af daglegu lífi og ólifnaði.. er stórgóð helgi, mannhjól kom við sögu, tíminn var nýtur og tölur voru saumaðar, sunnudagurinn kom og ég hélt eitt andartak að hann ætlaði að freta framan í mig.. en ég gerði uppreisn og sló hann utan undir (hvort sem það er í einu orði eða ekki), fór niðrí skóla og veitti aðstoð mína með leik í Gettu betur myndbandinu.. leit inn til ömmu og afa og fékk snúð, fer alltof alltof sjaldan í heimsókn til ömmu og afa sem eru uppáhalds hjónin mín.. já og svo ætlar allt að tryllast á næstu dögum. Á miðvikudaginn er söngkeppnin í Vma, fregnir herma að 23 atriði séu búin að skrá sig! Kræst.. Fimmtudagurinn er soldið mis, um kvöldið er konukvöld í skólanum sem ég er jú að skipuleggja hörðum höndum ásamt hinum stjórnarpíunum.. en einmitt þennan fimmtudagseftirmiðdag ætla ungu vísindamennirnir úr MA suður og gera eitthvað rokorknar sniðugt fyrir föstudaginn sem fer allur í keppnina, það er víst komin þéttskipuð dagskrá.. og þar sem ég þykist ætla að verða uppeldisfræðivísindamaður og otaði mér inní þessa keppni, er óskaplega erfitt að velja hvort ég eigi að fara suður með brjáluðu vísindamönnunum og missa af konukvöldinu þar sem ***** verður með massa uppistand á kantinum! Eða öfugt, njóta þess að jússast með öllum gellunum í skólanum og missa af útúrfrúttuðu hópefli í borginni. Þetta er óendanlega erfitt.. veit bara ekkert hvað ég geri! Núeeeh á miðvikudaginn í næstu viku á Gettu betur liðið okkar leik á Egilsstöðum og að sjálfsögðu fer sneisafull rúta með vel möltuðum Ma-ingum.. jah ókeypis á staðinn! Rífandi rífandi rífandi.. við erum meira að segja búin að fá óbilandi forystu jötun fyrir klappliðið sem ætti að vera öllum kunnugur en það kemur allt í ljós þegar við förum að halda skipulagðar klappæfingar. Þetta leggst allt saman ógurlega vel í mig :)
Já svo setti ég inn link á myndasíðuna mína.. sem er ekki sneisafull og verður það sennilega aldrei ef ég þekki mig rétt.. sem ég ætti nú að vera farin að gera


<< Home