fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Góður dagur í gær :) Búningurinn sem varð fyrir valinu var afar einfaldur, hann saman stóð af sokkabuxum, skykkju og batmanbol af Ásgeiri frá því hann var 6 ára. Óhætt að segja að ég hafi lagt metnað minn í að líta út eins og sannkallað fífl. Ekki hika ég heldur við að segja að við vinkonurnar höfum litið fremur illa út þegar við spásseruðum um mjólkursamlagið ásamt litlu sætu krökkunum, við uppáklæddar sem misþroskaðir einstaklingar önnur í sokkabuxum og úlpu, og hin í gubbugrænum trúðabúning. Foreldrarnir hefðu mín vegna alveg mátt sleppa því að halda að við værum eitthvað að fara að syngja þarna. Annars heppnaðist öskudagurinn vel, kötturinn lét ekkert bíða of lengi eftir sér, sem var búið að vera lítillegt áhyggjuefni okkar Lilju.. limbómeistara síðari ára Elmari Geir var sparkað úr hásæti sínu eftir harða baráttu Batmans og Dönu.. Batman var þó gjörsigraður að lokum og hefur ekki sést til hans síðan. Eftir sprell og læti fékk fólk sér svo kókómjólk og kleinuhringi sem höfðu fengið sinn sundsprett í einum af steikingarpottum bæjarins. Tvíhöfði kom í Kvosina um kvöldið og voru svona líka rokorknar skemmtilegir. Jón Gnarr á heiður skilið fyrir sína tilveru.

Annars er ég búin að fá mér myndasíðu, vei!