Öskudagur á morgun! Ég er svona búin að vera að spá í því hvað ég eigi að vera.. zoro kemur vel til greina.. trúðabúningurinn síðan ég var 7 ára er þannig að ég kemst í hann ennþá en úlfaldaklaufin er kannski aðeins of þannig að ég held að hann verði ekki fyrir valinu.. ég gæti mætti í vöðlum sem veiðimaður en lyktin af þeim er banvæn.. gæti verið spil það er til fyrir lil (úff).. refabúningurinn frá því ég var 4 ára kemur eiginlega ekki til greina, ég er búin að tékka.. spurning um að finna eitthvað einfalt í fyrramálið bara þar sem klukkan er farin að ganga 3.
Ég var niðrí skóla áðan með Lilju að útbúa bólstað fyrir kött morgundagsins.. fyrir valinu varð tunna.. botnlaus tunna, spurning hvernig á að redda því? Tunnan sjálf er orðin frekar skrautleg og fín.. ,,vitlausar áherslur" segja raddirnar í höfðinu á mér núna. Morguninn á morgun verður hress.. redda búningi og botni.. e-kkert mál! Annars vorum við frekar lengi þarna niðrí skóla.. húsvörðurinn farinn fyrir góðum 3 tímum þegar við sáum okkur fært að hypja okkur.. föttuðum það svo þegar við ætluðum að fara út að hvorug okkar var með lykil. Flottar. Hringdum í Hörpu og hún var með lykil, svo við keyrðum útí þorp til hennar og náðum í lykilinn, Harpa á brókinni.. gaman að fá heimsókn kl. rúmlega eitt.. jæja, niðrí skóla aftur og við löbbuðum saman að hurðinni til að læsa, Lilja setur lykilinn í skránna jújú það er hægt að hreyfa sko en hvaða fáviti sem er ætti að vita það að maður notar ekki lykil þegar maður læsir útidyrahurðum á Íslandi.. þó víðar væri leitað.. það er svokallað "lítið tippi" á hurðinni sem maður stjakar við og viti menn lok lok og læs! Við Lilja erum greinilega eitthvað meira en fávitar.. til hamingju


<< Home