Jájá.. jólin eru búin. Ljósin eru að fara og snjónum heldur áfram að kyngja niður. Þvílíkt gríðarlegt fannfergi sem er á götum bæjarins. Ekki svo hentugt fyrir ökumenn eins og mig, sem átta sig ekki alveg alltaf á því að þeir séu ekki á mannhæðarháum dekkjum, og fara jafnvel útí þann pakka að leika ýtu á fólksbíl. Ég hef aldrei verið neitt sérlega góð að keyra í snjó. Eða keyra yfir höfuð jafnvel (þó ég hafi ekki prufað það í bókstaflegri merkingu) ég skrifaði nú um daginn ágætis lýsingu á því þegar dekkið tættist undan bílnum á einhvern undraverðan hátt.. ég hef ekki enn skilið af hverju það gerðist. En ég virðist vera sérstaklega lagin við það að festa bílinn á öllum mögulegum stöðum.. eða allavega halda það þangað til að ég fatta að hann er í handbremsu. Það hafa allnokkrir karlmenn blótað mér við þessar aðstæður já. En jájá fjandans snjór.. hann getur líka verið skemmtilegur.
Nú er hafin próftíð, húrra fyrir því. Maður er jafnvel að hugsa um að taka þetta alvarlega og fara ekki útí það að bryðja koffíntöflur. Já hver veit nema maður komi sjálfri sér á óvart bara og sofi á nóttunni og svona. Það væri hálf notalegt. Þegar maður gerir það þá verður próftíðin eiginlega bara í heild sinni notaleg. Bið fólk um að horfa fram hjá því klukkan hvað þetta er skrifað... það er nú bara laugardagur núna. En allavega þá held ég að ég haldi mig við notalegheitin þessar tvær vikurnar. Ætli það sé ekki snjórinn sem hefur þessi áhrif á mig, það er eitthvað við það að koma inn úr hríðinni, eftir að hafa labbað túnið þar sem snjórinn er búinn að einangra allt, kveikja á kertaljósi og hlusta á t.d. Tenderfoot, sem ég var að kynnast.. þeir eru ó-trú-lega notalegir..
Á mánudaginn, ætla ég að herja á Verkmenntaskólann.. mikið hlakka ég til að sjá hvort ég geti tekið val þar á næstu önn. Það væri frábært.. svo ótrúlega frábært.. ja þessi framtíð já.. ég trúi því varla að ég sé allt að því búin að ákveða hvað ég ætla að gera, og mér finnst fólkið í kringum mig almennt vera með það á hreinu hvað það ætlar sér. Elfa mein þroll verður hér á Akureyri, Bergþóra verður að öllum líkindum í Reykjavík með sínum ekta manni, Helena verður á bjórþambi einhverstaðar í Danmörku með börn uppá arminum og ef ég verð ótrúlega heppin verður Lilja hérna memm á Akureyri líka. Ótrúlegt. Fyrir hálfu ári var spáin þannig að allir yrðu á einhverju crazy flippi í útlöndum. En nú er öldin önnur.. já svei mér þá ef þessi færsla er ekki bara orðin ógnvænlega löng og þeim mun leiðinlegri. Best að fara að sofa bara.


<< Home