miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Jæja.. nú er jah lítið eftir af þessari viku.. sú staðreynd laumar að mér þeirri hugmynd að fara að verða stressuð. Við erum að tala um tvær vikur, tvær vikur í árshátíðina. Ég er að sjálfsögðu komin með ótal hugmyndir í hausinn um það hvernig ég eigi eftir að verða mér til skammar þegar ég hnerra því útúr mér að árshátíð Menntaskólans á Akureyri sé sett. Hvernig mér tekst það veit ég ekki, en sviðið segir mér að eitthvað eigi eftir að fara úrskeiðis. Annars er allt farið á fullt í undirbúningi. Skreytinganefndin er að standa sig stórvel, við fórum útí Höll í dag og mældum þetta allt út. Marseruðum inn í frjálsan tíma hjá VMA með 30 busastelpur.. mig grunar að tuðruspörkurunum í salnum hafi ekki leiðst að fá þennan fönguglega áhorfenda hóp í salinn ;) Stórefast um að stelpunum hafi leiðst heldur. Eitt fattaði ég í þessari ferð minni, fjórða árið í röð. Íþróttahöllin er ansi stór. Ég vona að hún éti ekki skreytingarnar okkar. Upphluturinn var mátaður í gær og hann passaði ágætlega. Nema hvað að þreföldsílíkon aðgerð myndi kannski hjálpa til við að fylla uppí þennan gám þarna. Til hamingju Lilý, með að vera með dvergsbúbba. Hvar fær maður svona tribbúl púss öp fylling bra? Æhégveitþaðekki.. ætli maður reddessekki einhvernveginn öðruvísi ;) En nóg um árshátíðina (ég er nú bara farin að hlakka til af þessu tali.. góð hljómsveit líka :D) . Ég setti tengil á síðuna hans Þorsteins Guðmundssonar sem er vandlega djúpsteikt, en engu að síður drep hlægileg.