mánudagur, október 25, 2004

Jæja.. þá er það tilraun tvö, blogger ógeðið eyddi öllu sem ég skrifaði í gær. Munaði minnstu að ég færði mitt hafurtask yfir á fólk.is eins mikið og ég elska þær síður. Nú verð ég að segja að mér finnst þessi Bingó þáttur sem skjár einn er að ota inn í dagskrá sunnudaga, með eindæmum fáránlegur! Nú meiga landar mínir prenta út bingó spjöld af einhverri netsíðu og sitja æstir fyrir framan skjáinn á sunnudagskvöldum í von um vinning. Og hvað er nú í vinning? Jahh.. sem dæmi eru ársbirgðir af ora baunum (hverjum veitir ekki af því?), karton af bleyjum (sem við þurfum reyndar all flest þegar á hólminn er komið.. látið mig vita það!), klósett pappír í langebaner, fjarstýrða bíla og (það eina sem mér fannst áhugavert) prumpuvél. Semsagt eingöngu eitthvað sem hinn almenni Íslendingur situr uppi með óra lengi og hatar að geta ekki notað skápaplássið undir eitthvað annað (fyrir utan prumpuvélina). Ekki nóg með þetta heldur tókst þeim að fá eitthvað fíbl í þáttinn sem lét tattooera á sig mynd af skjávarpa, fyrir vikið fékk maðurinn skjávarpa. Er ekki í lagi með fólk? Þó mig langi alveg í hornbaðker þá sé ég ekki alveg fyrir mér að ég myndi væra sæl með mynd af kvikyndinu á löppinni á mér! Æhhh.. svona er þetta bara. Hinsvegar fór ég í Sjallan á laugardaginn. Það var mikið stuð og mikið dansað og mikið svitnað.. mér leið eins og búrhval með ofvirka svitakirtla og missti andan þegar ég sá að Geir var mættur.. í ullarpeysu! Maðurinn sem sem setur ísmola í sturtuhausinn á morgnana, syndir nakinn í jökulsárlóni en kvartar samt undan hita! ..þegar ég kom heim úr sjallanum tók við klukkutíma vinna við að tína glerbrot úr iljunum á mér, það er ekkert grín að mæta í tátílum á þetta dansgólf.. hugsað þetta aðeins betur áður en ég ákveð að fara í þeim næst. Annað markvert sem gerðist um helgina er ekki margt.. leti er orð sem kemur í huga mér þegar ég hugsa til baka.. endaði hana vel.. tók allnigter á verkefni sem ég hefði getað gert á fimmtudag, eða föstudag, eða laugardag, eða jafnvel bara á sunnudaginn. En það var einhvernveginn miklu betri kostur að byrja á því klukkan hálf eitt á sunnudagskvöldið og fara að sofa vel sjúskuð með lím útum allt klukkan hálf sex.. góð byrjun á vikunni!