Ég þori næstum því að halda því fram að ég sé búin að standa mig með miklum sóma í dag. Tók mig til og mætti á réttum tíma í alla mína tíma og hafði gaman af! Yndislegt. Dagurinn byrjaði klukkan 8.15 og lauk klukkan 18.00 ..án hádegis, megi stulli hirða þessa mánudaga! Afrek að lifa þá af. Bömmer dagsins var þegar ég gleymdi að það væri myndartaka í dag (jújú ég var með í því að ákveða hvenær hún væri) og fattaði að ég hafði ekki haft rænu á að fara í klippingu og förðun, einhver verður úldin á þessari mynd! Móment dagsins var hins vegar þegar ég kveikti á kerti fyrir Kúkú, köngulónni sem ég myrti í gær. Mér hefur verið fyrirgefið. Gleði dagsins var svo þegar ég fékk að vita að mér yrði gefinn annar séns í Idol... nei því lýg ég! Gleði dagsins var þegar ég fattaði að það er frí í fyrstu tveimur í fyrramálið :D Fréttir sem gleðja mitt græna eyra.. Vonbrigði dagsins eru tvímælalaust þau að vera ekki búin með landafræði ritgerðina, til hamingju.


<< Home