miðvikudagur, september 22, 2004

Bloggerinn sem býr í mér fór í frí í tæpan mánuð en er nú kominn aftur, endurnærður segir hann.. en ég veit ekki hverju ég á að trúa. Nú er að velkjast fyrir mér hvort ég eigi að koma með ferðasögu frá Krít. Nenni því eitthvað voðalega lítið, allavega ekki núna.. held ég láti duga að segja að þetta hafi verið óhemju skemmtileg ferð. Sól (næstum því) allan tíman og ljúft að lifa. Frá því að við komum heim hefur margt verið að gerast og varla verið tími til að setjast á salernið. Bókamarkaður Hugins.. gott framtak en stór höfuðverkur og endalaus vinna. Busabus.. fáránlegt hvað það getur verið gaman að vera leiðinleg og pína fólk sem hlýðir manni (nánast) í einu og öllu. En það er búið, fór vel fram og allir glaðir... voðalegt hvað ég nenni lítið að skrifa, ég læt þetta duga í bili enda komin tími til að slafra í sig fiskisúpu sem faðir minn hefur soðið saman með mikilli ástríðu.