Landafræðiritgerð sagði maðurinn með ískalt glott framan í sér.. og nú strita félagsfræði nemar. Af hverju get ég ekki bara göndlast til að gera þetta?! Hér sit ég eins og fáviti með bókastaflan hliðiná mér og netið fyrir framan mig og hvað er ég að gera? Jú blogga, eftir að hafa spilað Pictionary (og það á netinu) í klukkutíma! Það er eitthvað sálfræðilegt við það að byrja á skólaverkefnum.. það tekur mig heila eilífð og svo enda ég á skiladaginn með kaffi í krús og bauga niðrá búbba eftir allnighter verkefnagerð, steinhissa á því að hafa ekki byrjað fyrr... þrolli.
Skemmtanagildi klósettferða minna í skólanum hefur nú aukist svo um munar. Elfa setti könnun inná kompuklósett þar sem maður getur nú lesið útúr henni hvað fólk er að athafast á klósettinu og jafnvel hvernig því gengur. Ég varð glöð þegar ég sá þetta, því nú veit ég að ég er ekki ein með kúkahúmorinn ennþá.. það eru greinilega fleiri. Ég held að það blundi enn í manni síðan maður var krakkakorn að það sem ekki á uppá pallborðið vegna siðferðiskenndar eða bligðunar eitthvað sé fyndið. Svo framarlega sem það sé eitthvað sem allt mannfólk gerir og þetta er víst eitthvað sem allt mannfólk gerir, rannsóknir sína að konur kúka ekki rósablöðum. Hins vegar er margt sem ekki er fyndið þó það sé óviðeigandi í nútíma samfélagi að tala um það þá meina ég að tildæmis spjall um ras********verga sé ekkert sérlega fyndin umræða þó að slíkt eigi ekki við í heitapotsspjalli. Megi kúkahúmorinn lengi lifa.. inná kompuklósti
En þetta er eitthvað! Danmerkurþráin er blossandi bandbrjáluð og lætur fara mikið fyrir sér. En hey.. ekki strax.


<< Home