Hver sendi allar þessar köngulær til að njósna um mig! Dagurinn í dag er búinn að einkennast af því að ég rekst á könguló hvert sem ég lít. Ég er virkilega komin með nóg af þessu.. ef sá hinn sami vill eitthvað vita hvað ég er að athafast inní mínu herbergi getur hann bankað uppá og komið í heimsókn. Þessi kvikindi lauma sér einhvernveginn inn algjörlega án þess að ég taki eftir því, það er ekki fyrr en ég fer að þrífa og laga til um helgar að ég kemst að því að þær hafi legið á hleri bak við gardínur eða undir ruslakörfu í viku og útsendararnir sitja eflaust ánægðir með sinn hlut bak við hól og búa til skýrslu um mig. Helvítis helvíti.. í fúlustu alvöru hata ég köngulær. Stórkostlegur ókostur við það að búa í kjallaraherbergi er að köngulær halda að þeirra sé einmitt óskað þangað inn.. mikill misskilningur sem stafar eingöngu af því að köngulær virðast ekki skilja íslensku þegar talað er til þeirra. Mér mætir tregur svipur og þær slefa á gólfið þegar ég reyni að gera mig skiljanlega. Í dag reyndi ein að hlaupa undan sandalanum sem ég hélt á, á meðan ég öskraði: DEYÐU, DEYÐU!!! Skyndilega stökk hún upp í loft upp að andlitinu á mér og ældi. Þarna stóð ég með dordingulsgubb framan í mér og vissi ekki í hvorn fótinn ég ætti að stíga, þegar ég sá að hún var lent aftur, tilbúin að taka á rás undir pappakassa, hélt ég nú ekki og potaði í hana blýanti.. þá var hún dauð. Ógeðið á'enni. Þegar ég var búin að drep'ana settist ég niður og fór að hugsa minn gang. Er ekki frá því að samviskan hafi bitið mig í hnakkann eftir ósköpin og ég fór að spá í því hvort það gæti verið að þetta hatur mitt stafaði af einskærri grunnhygni. Ég veit það ekki, nú eru ástæðurnar fyrir því að ég hata köngulær þær að mér finnst þær ógeðslegar, ljótar og skilningslausar.. en þessu geta kvikindin ekkert gert í, því er nú ver og miður.. þær líða fyrir að vera ljótar og það er alls ekki sanngjarnt. Svo ég tók þá næstu sem ég rakst á, þar sem ég fór um herbergið eins og stormsveipur, mjög blíðlega upp og lagði hana út fyrir útidyrnar. Mér leið betur eftir það.. þó ég óski ekki eftir nærveru þeirra er kannski óþarft að taka af þeim lífið litlu ógeðunum.


<< Home