Mánudagur enn og aftur. Kemur alltaf jafn óþægilega aftan að manni. Helgin var alveg ágæt. Byrjaði á skemmtilegu föstudagskvöldi þar sem víða var litið við, afmæli í Hvíta húsinu, HOMMApartí, rúnturinn og Kaffi Ak komu við sögu og gleði og kátína ríktu á öllum stöðum. Kvöldið endaði á löðursveittum pönnukökum. Nú hafa sveitungar okkar í nærliggjandi bæjarfélögum heyrt af ágæti þessa dýrindis eldamennsku sem seint verður gleymt. Eða eitthvað í þá áttina.. ef félagi okkar á Krít vissi af þessu vildi hann klárlega samstarf, svo mikið er víst. Laugardagurinn var tekinn með trompi. Foreldrakynning, framkoma, skjálfti og taugaóstyrkni einkenndu fyrrihluta dagsins þar sem færni mín í ræðumennsku kom í ljós. Eftir þetta held ég að veislustjóri árshátíðar Menntaskólans verði veikur 26. nóvember. Nei ef ég ætla ekki að falla í yfirlið þá er eins gott að ég fari að semja ræðuna fljótlega, ráði þrautþjálfaðan ræðumann til að kenna mér að tala og lesi hana yfir oft á dag. Hvernig datt mér í hug að verða ritari vitandi af þessu hlutverki?! Jæja.. um kvöldið var eldaður dýrindis matur og snæddur með bestu lyst. Við erum að tala um villikryddað lambalæri með rjómalagaðri sveppasósu, smjörhituðum maísbaunum, kartöflum og salat sem brytjað var af mikilli ástríðu. Eftirrétturinn var ekki af verri endanum.. epla pæ með ís og sjokolade. Allar lögðum við hönd á plóginn og útkoman varð eftir því, ólýsanlega góð máltíð í góðum félagsskap. Vonandi verður þetta mánaðarleg athöfn hjá okkur stöllum. Eina problemið er hvað skal kalla klúbbinn. En það verður líklega leyst farsællega. Sunnudagurinn var eins og sunnudagar eru alltaf, leti, leti og leti. Alveg er þetta ágætt. Gaman að upptalningu á hlutum sem hafa á daga manns drifið svona á veraldarvefnum. Maður veltir fyrir sér tilgangnum með þessu, og kemst ekki að neinni niðurstöðu. Nú ætla ég að sækja aloe vera kaktusinn uppá bað og kreista úr honum allan safann á tærnar á mér, ég þeirri veiku von um að þessar tuttugu og fimm blöðrur hjaðni fljótlega. Alveg er það óþolandi að ganga til nýja skó, getur þetta helvíti ekki bara passað á mann.. borgandi morðfjár.. fari það sótbölvað, það sem maður leggur á sig!


<< Home