Sko til 15 stiga hiti í nóvember. Sem veldur því að ég tók í dag góðan tíma í að þrífa bílinn, bæði innan sem utan. Fyrstu mistök voru að fara ekki í stígvél heldur tátílur (fíbl). Nú hef ég aldrei þrifið bíl á ævinni áður þannig að ég neyddist til að gera það tvisvar, þar sem einhverjir drullublettir höfðu orðið útundan. Það sást klárlega á aðförum mínum að ég hafði enga prófgráðu í þessu, en einhvertíman er allt fyrst. Ætli þetta teljist ekki afrek dagsins, nema ég slysist til að opna sálfræðibókina. Allt getur gerst. Í kvöld er svo stefnt á matarklúbbseldamennsku :) Hlakka til.. kósý kósý, held að planið sé eitthvað austurlenskt, en það kemur í ljós. Þessi helgi er nú ekki beint neitt sérlega spennó, þar sem próf hvílir á þriðjudeginum, allir skunduðu heim til sín á fimmtudeginum og maður er bara í einhverjum leti gír. Svo tókst mér að týna skólatöskunni minni með tilheyrandi og símanum mínum í. Algjör óþarfi hjá mér, þar sem ég kemst sennilega ekki í tæri við kvikyndið fyrr en á þriðjudag.. til hamingju, skólinn er harðlæstur. Spurning um að fara inn kompumegin og klifra upp í loftræstinguna?! ..ætli ég lifi símaleysið af?


<< Home