Já.. gaman af því að vera á svo miklum túr að það líði næstum yfir mann þegar maður er að tannbursta sig.. nei bíddu, ekki svo gaman! ..kona já. Ég er einmitt farin að taka ískyggilega eftir því hversu mikil kona ég er. Þetta í sambandi við bílana, jájá það á allt við mig, sama hversu langt tilhlaup ég gef bílnum upp gilið endar það alltaf á því að ég skríð upp á 10 km hraða.. og mér væri einhvernveginn alveg sama þó ég tæki mér bara góðan tíma í þetta.. ef það væri ekki fyrir þessa 8 gargandi bílstjóra sem bíða óþreyjufullir eftir að hlassið hafi það upp helv. brekkuna. Þegar það er hált úti, þá er ómögulegt fyrir mig að beygja.. nema stoppa bílinn áður en haldið er af stað.. annars endar hann útaf veginum... og um daginn spólaði ég svo mikið upp eitthvað sem ég held að geti ekki einusinni talist sem brekka (afleggjarinn hjá húsasmiðjunni) að ég þurfti að bakka og taka tilhlaup, tveir pirraðir bílstjórar á eftir aumingjanum og auminginn sér þá ekki fyrir þessum hundrað metra garðadúk sem fyllir aftursæti bílsins. Nett heppin á kantinum að klessa ekki á þá. Já og þegar ég keyrði um bæinn á sprungnu dekki og fattaði það ekki fyrr en Lilja steig útúr bílnum og það rauk úr helvítinu, sem var hætt að vera dekk og orðið að einhverskonar lakkrístætlu. Svo ekki sé talað um að stoppa á grænu ljósi og keyra með háuljósin innanbæjar.. drepa á kvikyndinu og þessháttar. Hvernig í veröldinni mér tókst að fá bílpróf skil ég ekki og mun seint skilja.. fólk lendir ekki í árekstri við húsið sitt! ..ég held ég haldi bara áfram að hekla þetta sjal þarna :)


<< Home