mánudagur, nóvember 29, 2004

Þá er árshátíðin yfirstaðin.. henni tókst einhvernveginn að fljúga framhjá mér. Ég fann ekki fyrir henni, jafnvel fyrir sakir óhugnarlegrar þreytu. En þetta var gaman. Það var gaman að vinna með öllum að þessu, það var ótrúlega gaman að labba inn í salinn með öllum hinum fjórðubekkingunum, það var gaman að vera stressuð, það var ótrúlega gaman að sjá alla svona sæta og fína, og það var stórskemmtilegt að horfa á öll skemmtiatriðin.. og það var notalegt að sofna á ballinu.. lagðist eins og lítill félagskúkur upp í sófa og steinssofnaði.. laugardagurinn var tekinn með jussi.. náttbuxur hele dagen, stjórnin fór svo ásamt fleira góðu fólki vel úldin og æðisleg á bautan í náttbuxunum og við fengum okkur einn sveittan. Í gærkvöldi fór ég svo í kókaínhöllina þar sem haldið var yfirdrullpartí ársins.. meistari drullunar var þar í essinu sínu og hlífði engum. Gaman að Örn skyldi koma.. eftir dágott umtal! Fyrsti í aðventu læddist inn um dyrnar í Löngumýrinni í dag. Mamma sauð hangikjet og hnoðaði í smákökur.. mér leið eins og jólin væru komin.. notalegt mmm.. fór í vinnuna í dag og Tao tókst að láta mig fá kínverskt lag á heilan.. hvernig er það hægt? Frekar slæm staða á þeim manni.. hann fær lag á heilan, syngur hástöfum alla vaktina, allir eru farnir að froðufella af geðveiki en enginn getur sagt honum að þegja því hann skilur hvorki íslensku né ensku! Eitt núll fyrir Tao..