fimmtudagur, desember 23, 2004

Hér sit ég hjá bergþóru big búbs lyktandi eins og djúpsteikt rækja... ójá, einhver svangur? Góð tónlist hefur verið ríkjandi í kvöld, þéttur playlisti með slögurum á borð við sexy eyes og freestyler... aftur.. ójá! Mikið gaman mikið grín, beg er búin að syngja með eins og herforingi og ég dett niður dauð ef ég sé einhvern lifa sig jafn heiftarlega inn í lagið I don't need your love anymore.. anymooooohohor... (hor?) (sem er undarlegt því ég má hestur heita ef það er það sem júngfrúin er að hugsa þessa dagana!)
Enda þetta á smá svekkelsi. Nú uppgötvaði ég um daginn að ef svo illa vildi til að ég væri haldin Freuterisma, hefði ég stunið úr mér lungun á laugardaginn.. og það hafa þeir freuterissismar sennilega gert sem otuðu kynfærum sínum óbeðnir í fólk, fólk sem stóð fyrir framan fatahengið í sjallanum í þeirri von um að fá jakkan sinn án þess að vera með tuttugu tippi í trylltu tangói í kringum sig! Ööööð sveitta sveitta fólk.. Ef einhvern tíma hefur gefist tækifæri til að vera svekktur yfir freuterismaleysi þá var þetta rétta stundin.. himnaríki freuteristans!