miðvikudagur, desember 01, 2004

Í dag var ég veik heima.. og það sökum blóðleysis.. já ég er stolt af því að vera kona, en aldrei hef ég lent í því svo slæmu að þurfa að vera heima heilan dag, hvílík ósköp! Þessi heimavera mín hafði uppúr sér (og þá er ég ekki að tala um ælandi búálf) svefn til klukkan 3 og þegar maður sefur svona lengi verður maður þreyttur allan daginn og jafnvel í viku. Annars er ég búin að vera einmanna bara með asnalegt hár og í aumingjalegum fötum, bróðir minn kætti mig í dag með sögu af sjálfum sér. Hann fór í klippingu í dag með sitt síða rennislétta hár.. sem mundi ekki krullast þó að það væru settar karmenrúllur í hann og látnar vera í viku.. en klipparinn hans var sannfærður um að það þyrfti að róa hárið á honum og setti þessvegna eitthvað sjömma efni í hann, í þeirri von um að fíblið myndi kaupa ógeðið á 1100 krónur! ..og það sem meira er, lyktin af þessu er svo ógeðsleg að ekki er hægt að vera nálægt glimmerbossanum. Meira skemmtilegt sem ég hef gert í dag.. fundið upp ótal múf fyrir apann minn með löngu hendurnar og nasirnar nú er hann eini apinn á landinu sem getur gert freakin disko step og hreyft hendurnar með, gert scoooooore með handahreyfingu, borað í nefið... tekið netta keilsusveiflu og fleira ótrúlega skemmtilegt! Núna hins vegar ætla ég að fá mér kvöldmat.. í kvöld er grabendít í matinn, hvað er það? Ég giskaði einmitt á einhverskonar gratín fannst það hljóma líkt og hélt þessvegna að sjömmaglimmerið hefði ruglast eitthvað þegar hann tilkynnti mér þetta.. en nei meistari útúrsnúningsins hló dátt og sagði hægar.. grab and eat!