miðvikudagur, desember 22, 2004

Jájájá.. skólinn kominn í frost og vinnan er hafin. Sú var tíðin að ég hlakkaði til að komast nú í jólafrí, slaka á stressinu sem fylgir verkefnunum (upp203 og fél403 mega girða sig) og öllu öðru skólatengdu. En neibb.. lítið um stressleysi og afslöppun. Tvær vinnur og allt á trilljón. Ég er mígandi heppin ef ég fæ klukkutíma hlé á milli vinna. Svona er þetta.. erfitt að þurfa peninga. En ég þakka mínu sæla fyrir að vera í vinnu á annað borð og svo er ekki amalegt að það er gaman að vinna á báðum stöðum. Blómabúðin kemur manni í jólaskap :) Það eru allir að versla jólagjafir og flestir með bros á vör þegar þeir draga upp vísakortið.. en ekki hvað. Svo verður ekkert að gera í janúar. Nema að fylla upp í búðina, maður er farin að heyra bergmálið af sjálfum sér þarna inni í tómleikanum, tryllingurinn er svo mikill að búðin er að verða tóm. Eins og þér segja gellurnar sem ég vinn með.. það fer að verða fátt um fína drætti! Þetta er klárlega nýja uppáhalds orðatiltækið mitt. En nú ætla ég að standa við stóru orðin og þrífa herbosið áður en ég stekk inn í steikarfýluna hjá Peng!