Prófin eru búin, til allrar hamingju. Nú getur maður farið að lifa á nýjan leik, mikið er það gott og gaman. Svo er ekki langt í stóru stundina.. ég finn fyrir skjálfta í hnjánum og fiðringi í tánum þegar ég hugsa um mína heittelskuðu.. ójá hún er unaður og yndi og hún bíður mín! Köben, viltu giftast mér?! Nei við skulum nú ekki vera að hádramatísera þetta en víst elska ég Kaupmannahöfn og ég get ekki beðið eftir mánudeginum. Erum við að tala um útsölur í H&M.. ó beibrrrr.. hvað er þettað!. Café Klaptræt og det hvide lamb.. mann og mús.. Moos :) Þvílík hamingja og eilíf gleði. Sæææææla ég sé þig ekki meir, oj. Að vera með "Efhorfteráíréttuljósilagið" með B. Haukdal, er ekki góð skemmtun. Ég verð að útrýma því einhvernveginn úr hausnum á mér, fer ekki að bjóða þessu lagi bólstað þar, nei takk! Bóndablóm á morgun.. sem þýðir aðeins eitt fyrir mig, vinna. Annars elska ég að vinna í blómabúðinni, maður kemur heim og ylmar eins og blóm. Í staðinn fyrir pengfnykinn sem fylgir púkanum eftir vinnu á þeim bænum. öð. Ég ætla að fara að sofa með Sigurrós.


<< Home