miðvikudagur, janúar 19, 2005

Ójá.. til hamingju, til hamingju, til hamingju allir MA-ingar og þá sérstaklega þríeykið Ásgeir, Bensi og Tryggvi! Þvílík unaðs tilfinning. Sjónvarpið bíður okkar! Ég stóla á hrausta og raddsterka, sem og klappgóða MA-inga til að láta í sér heyra þann örlagaríka dag sem við sitjum fyrir myndavélum RUV og mænum á L,l,l,l,loga. Gaman væri að sjá einhverja fílelfda fjórðubekkinga gera allt vitlaust í kvosinni! Össs þetter svo spennandi! :D Óhætt er að segja að Sólin hafi tryllst í Álfabyggðinni þegar úrslitin voru ljós, unaður ó unaður :)