Maður er soldið í stressinu núna bara.. sniðugt að byrja að læra á sunndagskvöldi þegar maður er búinn að hafa aaaaalla helgina. Flott. Ótrúlegt hvað það er margt sem þarf að gerast akkúrat í próftíð. Skipta á rúmum, þvo þvott, horfa á alla þætti neighbours í einni runu, ryksuga, klára peysuna sem mamma var að prjóna í kennara háskólanum, já og svo fann ég hjá mér ólgandi þörf til að skrúbba loftið.. þessi kerti sóta þvílík ósköp. Ég horfði líka á Idolið í fyrsta skipti í vetur, og ætla mér reyndar ekki að gera það aftur, gott að ég sá mér fært að taka þá ákvörðun núna um helgina. Þannig að mér hefur tekist vel að vera upptekin við allt annað en lestur.. ég get þó sagst hafa reynt að lesa þessa landafræði, saga íslensks sjávarútvegs og skýjabólstrar eru bara ekki meira spennandi en það að ég svaf yfir þessu í heila fimm tíma í dag.. hvað er þettað?! Kaffi í kvöld?


<< Home