föstudagur, mars 25, 2005

Mikið óskaplega er erfitt að ákveða hvað gera skal næsta vetur. Óþarflega erfitt eitthvað. Mig langar (núna allavega) að læra heyrnarfræði í hákskólanum í Lundi.. og vil óska sjálfri mér til hamingju með að vita það þó allavega. En þar er fólk ekki tekið inn fyrr en á næsta ári svo ég verð að finna mér eitthvað að gera í ár. Ég var alltaf að hugsa um lýðháskóla og þá í Svíþjóð til að ná sænskunni.. allt voða sniðugt fyrir háskólanámið. En svo er ég búin að eyða núna þremur klukkutímum í að skoða heimasíður Sænskra lýðháskóla og mér finnst ég ekki finna neitt sem hæfir mér og mínum smáatriða kröfum. Svekkjandi, já. Ég held samt að ég hafi fundið út af hverju ég finn ekkert þarna í Svíþjóð. Mig langar til Danmerkur, það er svo einfalt. En það er samt einhvernveginn ekki nógu sniðugt því nám í heyrnarfræði í Danmörku er víst ekki jafn þróað og framúrskarandi gott og í Svíþjóð. Svekkjandi, já. Ah! Ætli ég fari ekki bara í bakpokaferðalag.. mig langar það líka rosalega mikið. Fara útum allt og vera skítug á tánum. Vonandi fæ ég vitrun.. annars væri vel þegið ef einhver veit hvað ég á að gera.. að sá hinn sami myndi ryðjast inn í einn af draumunum mínum og skrifa það með stjörnublysi í loftið. Það myndi ég örugglega pottþétt gera það.