sunnudagur, mars 06, 2005

mmmh ég var að fá þær fregnir að það er frí í fyrstu tveimur tímunum á morgun.. hvað getur glatt lítið hjarta meira þegar sunnudagur er að kveldi kominn? Annars var þetta ágætis helgi svona stórt séð. Ég smellti mér á árshátíð Verkmenntaskólans á föstudaginn. Því miður saumaði ég ekki kjólinn eins og ég ætlaði mér. Ég hætti snarlega við þegar ég gerði mér grein fyrir því að efniskostnaðurinn yrði um 5000 kjellinn. Þótti betra að halda í kauða og redda dressinu einhvernveginn öðruvísi. Árshátíðin sjálf var ágæt, hefði þó verið betri ef Kliður Örn Jónsson hefði verið fjarverandi, en svo var ekki. Ég held hreinlega að ég nenni ekki að blogga meira.. augun eru farin að þyngjast þessi heljarinar ósköp.. góða nótt...