fimmtudagur, mars 03, 2005

Pant læra heyrnarfræði. Örugglega pottþétt. Ég sá ljósið þegar ég fór í starfskynningu í Heyrnar- og talmeinastöð Íslands á mánudaginn. Held ég læri í Svíþjóð. Sé þetta fyrir mér.. doktor Lilý. Fólk mun kalla á mig ,,hey dok!" og ég svara.. ,,yes what can I do for you?". Annars voru fáar kynningar sem hreyfðu eitthvað við mér. Skólakynningarnar voru flestar lítið spennandi. KHÍ var ekki að auglýsa sig á nógu góðan hátt, nei hreint ekki. Sveittur gaur sem las upp af power point glærum eins og hann héldi að við kynnum ekki að lesa og gella sem gaf sig út fyrir að vita ekki neitt og var hreinlega steinhissa á því að hún hafi komist inn í skólann, því hún hafði aldrei verið neitt með börnum og ekki voru það einkunnirnar sem voru að pumpa í dekkin hjá henni.. svo hló hún, mér fannst hún hreinlega ekkert fyndin.. og þaðan af síður finnst mér fyndið að hún muni ef til vill koma til með að kenna börnunum mínum, og ef ég spái aðeins meira í þessu.. ef hún var besti fulltrú nemenda til að kynna skólann, hvernig eru hinir þá? Jah maður spyr sig! LHÍ var ekki að dansa heldur, gellan sem þræddi með okkur upp og niður alla stiga þurfti skyndilega að drífa sig eitthvað annað þegar við hefðum viljað spyrja meira. Iðnó já neih.. eitthvað mis þar.. Þetta eru skissur, við skissum. Já takk fyrir frábæra kynningu. En heyrnafræði verður það heillin.

Ég komst að því að ég á ekkert að mæta neitt í skólann á morgun.. og ætla því að sauma mér kjól fyrir árshátíð VMA. Sem ég held að verði stórskemmtileg. Strákarnir verða veislustjórar og lofar það góðu glensi. Við skulum vona að ég passi í kjólinn.. eða yfir höfuð eitthvað á morgun þar sem ég var rétt í þessu að stúta hálfum líter af sjeik!