föstudagur, mars 11, 2005

Mig langar hrósa:

Eyrúnu.. fyrir framúrskarandi söng í kvöld.. sem og önnur kvöld.. ef það er einhver sem lætur mig fá gæsahúð og tár í augun þá er það hún.. það sem ég elska þessa rödd!

Steinunni Rögnvalds.. fyrir góðan V-dags pistil.. húrra!

Valdísi.. fyrir að brotna ekki saman þegar hún missti salatboxið á stéttina í dag.. það munaði rosalega litlu!

Valdísi.. aftur.. fyrir að takast óafvitandi að láta gelluna í RL halda að hún væri ólétt! haha.. aldrei séð jafn mikið "neiertþúóléttenfrábærtbros" á ævinni!

Lilju.. fyrir ofurjúss í rósakjól.. ó Halló Halló, að það sé hann!

Unu.. fyrir að halda áætlun.. alltaf :)

Tíunda bekk á Ólafsfirði.. fyrir almennan hressleika

Hörpu.. fyrir að minna jafnaldra kærastans síns á að koma með skriflegt leyfi forráðamanns fyrir því að gista annarstaðar í menningarferðinni.. hehe

Þóhalli á A-bus fyrir að vera svalur gaur

Elfu, Helenu og Hörpu fyrir að láta drauminn rætast.. loksins!

Svo mörgu fólki í skólanum fyrir að vera alltaf frábær (ohenvæmið:))