fimmtudagur, apríl 14, 2005

Margt búið að gerast.. margt að gerast. Fegó.. stórfurðulegt fyrirbæri. Rígurinn var þruma.. ótrúlegur einkahúmor.. ég hló svo mikið af einu atriðinu, að augun fylltust af tárum og ég missti af því næsta, frábær samvinna og greinilega gott fólk sem er í þessu og stendur að þessu. Gaman gaman! Í dag fórum við yfir mætingarmiðana fyrir Ratatosk.. tugir nemenda flöskuðu á afar einföldu atriði.. merkja miðana! Koma svo.. svo leiðinlegt að fá skróp í tvo daga útaf einhverju svona. Aðrir óprúttnir nemendur halda að þeir komist upp með að svindla.. en þeir ættu frekar að hafa buxurnar upp um sig.. því við vitum af þeim.. í kvöld var ég svo með þrusu plan, ég ætlaði heldur betur að drita saman söguritgerð.. en nei góðan daginn, ég byrjaði á því að stinga mér á bólakaf í geymsluna gramsandi eftir jakka sem ég er búin að tíma og var heitt og innilega að vonast til að finna.. allt kom fyrir ekki, en ég fann í staðinn kjól sem ég fékk eftir ömmu.. ég smellti mér í hann og sá að ég var eins og hjúkka frá 1950.. mjög jússuleg, en að ég myndi bregða mér í hann og fara út á meðal fólks þótti mér fráleitt.. svo ég lappaði uppá hann all verulega og nú er hann íveru hæfur og vel það.. stytti líka buxur, lagaði pils og festi beltishanka á buxur.. ánægð með mig takk fyrir túkall, tí aur og traktor.. en nú ákvað Guddi þar sem hann sat þarna uppi í skýjunum um daginn og drakk rigningarvatn.. að smella á dúndrandi snjókomu og leiðindarkulda.. nokkrum dögum áður hafði verið yndælis veður, sól og hlýtt úti.. þetta breytingarskeið gerði það að verkum að ég my self fékk frunsu og svo aðra frunsu og er nú orðin æf útaf þessum belgjum.. en ég hef tekið eftir því að ég er ekki eini herpes sjúklingurinn sem þjáist þessa dagana.. ég sé fólk með frunsur hvert sem ég fer og hvar sem ég kem.. meira að segja forsetinn var með frunsu!