Samræmd próf.. verkfæri leigubílstjórans í myndinni If only (en það eru einmitt til kenningar um það að hann sé djöfullinn sjálfur). Já ég lagði leið mína alla leið upp í M4 í morgun sem kom í staðinn fyrir ræktina og enginn sagði mér að mæta í sundbol! ..þar beið mín samræmt próf í íslensku. Ég var afnöfnuð og fékk í staðinn númer. Mér leið eins og busa, ég var númer 42 og í þokkabót þurfti ég að sýna skilríki! Hvað er þettbrrr! Vill námsgagnastofnun ekki bara halda svona stúdentabingó?! Ha? Argans.. svo var þetta leiðinlegra en langt barnaafmæli. Algjörlega verið að hafa mann að fífli útí eitt.. og ekki laust við að eilítill pirringur hljótist af. Ein slæm byrjun á degi hérna hinu meginn!


<< Home