miðvikudagur, apríl 27, 2005

Hið ótrúlega hefur gerst.. ég lét til leiðast og trítlaði inná Bjarg í morgun.. með það markmið að svitna eins og jahh.. motha fuckah (svo maður sé svalur). Ég byrjaði á því að veiða spriklandi banana uppúr íþrótta töskunni minn sem hefur greinilega fengið að vera þar í nokkrar vikur.. segir ansi margt um mína íþróttaiðkun uppá síðkastið.. svo dressaði ég mig upp, þó ekki í spandex buxur en engu að síður í níðþröngan íþróttatopp og barðist við að ná andanum á leiðinni upp á Bjarg. Tíminn sem við fórum í, ég og Valdís, er kallaður body pump.. ég og lóð eitthvað að pumpast.. og konan sem stjórnaði var að öllum líkindum andsetin. Ég þurfti að berjast við að grenja ekki úr hlátri þar sem ég stóð með einhverja bjánalega stöng í höndum mér í alltof litlum íþróttabuxum sem áttu það til að síga aðeins niður að aftan.. þar sem ég horfði á gelluna með sama undrunarsvipinn allan tímann öskrandi feeelooooooooooott óendanlega djúp raddað til skiptis við jaaaaaahúúúú! Stundum trukkaðist líka eitthvað hljóð uppúr henni sem ég hefði haldið að heyrðist bara í hvölum þegar þeir mökuðust. Þetta var ó-trú-legur tími! Tecno og læti og gellan kunni að sjálfsögðu textana og vissi nákvæmlega hvenær kom góður staður til að blikka auganu og hnikkja hausnum. Ég held ég fari aldrei aftur í body pump.. en ég ætla nú samt ekki að gefast upp strax.. spinning á morgun einhver?