Ræktin taka tvö:
Ég veit ekki hvort ég sé löt eða óendanlega ástleitin. Ég virðist hafa mun meiri áhuga á að faðma gúmmíboltana á bjargi heldur en að beygla mig á þeim stynjandi og prumpandi við magaæfingarnar. Annars er maður nú komin í spandexbuxur þannig að það ættu allir vegir að vera færir. Hallelúja! Einn mikill og góður kostur við Bjarg er að Dabbi eink (sem ég veit ekki hvað ég að kalla, held það sé ekki til neitt íslenskt orð yfir kærasta frænku manns.. spurning um að kalla hann bara einka) er alltaf þarna á vappinu og þegar maður situr öfugur og kengboginn í einhverju tæki sem maður hélt að ætti að pumpa rassinn en var fyrir bæseppið kemur einki og bjargar manni úr einskæru bráðagerasigaðfífliíspandexbuxumtilfelli. Guði sé lof fyrir fólk sem maður þekkir og kann á þessar járnhrúgur. Annars er ég viss um að ég eigi eftir að taka áttatíu í bekk eftir sumarið og hver veit nema ég hjóli til reykjavíkur með töskurnar í kerru í ágúst þegar ég fer til lu France!
Ó ég mæli með:
Napoleon Dynamite ég hélt að það væri ekki hægt að komast svona nálægt húmornum mínum. Sófinn hjá Sólveigu er ennþá blautur af tárum og hori eftir að ég grenjaði og emjaði og vældi yfir þessari mynd og þessum manni! Einkaeign Kalla á þakinu er jafnvel stórsködduð eftir þetta kvöld. Annars mæli ég líka með því að vera alltaf bara í sokkabuxunum eða ef maður er heima hjá sér jafnvel bara á el brókos kókos og undir teppi þegar horft er á video.. það er svo kósí eitthvað.
Sundi.. það er samt skemmtilegra að reyna að fara vel fyrir lokun ef maður ætlar að synda. Það geta ýmis óargadýr verið í lauginni rétt fyrir lokun. Það er ekki fyrir hvern sem er að sigrast á ryksuguskrímslinu sem ég þjösnaðist yfir í hverri ferð (sem voru nottla eitthvað um þúst 250). Svo verða sundlaugarverðirnir líka argir.. fara jafnvel að syngja falskt og hátt og geyspa í miðju lagi á meðan þeir patast í kringum mann kíkkandi með öðru auganu og jafnvel báðum.
Ég mæli með því að fólk hengi upp lítinn miða fyrir ofan rúmið sitt eða á vegginn hliðiná því lítinn miða jafnvel innrammaðan sem á stendur morgunstund gefur gull í mund og hafi það að reglu að fyrsta verk hvers dags sé að opna augun og hlægja að þessum miða beint í opið geðið á honum og slefa svo á koddan í upp undir korter í viðbót. Standa þá á fætur, alltaf myglaðari en í gær. Ég var næstum því búin að skrifa og múna svo miðan á leiðinni út úr herberginu en mér fannst það of mikið.
Svo að lokum mæli ég ekki með því að fólk vari að sofa klukkan hálf þrjú fyrir morgunvaktir.. en um leið get ég mælt með því að fólk læri af reynslunni.. ég vildi að ég vissi hvernig það væri!


<< Home