sunnudagur, júní 19, 2005

Ég lít í kringum mig, ég lít á sjálfa mig, ég lít í spegilinn og ég veit varla hvað snýr upp og hvað snýr niður. Ég veit ekki hvort ég á að gráta eða hlægja, kvíða fyrir eða hlakka til. Það er eins og allt vaxi manni í augum þessa dagana. Fjarlægðir eru strax byrjaðar að góla og sveifla höndunum. Mig verkjar í magann og ég fæ tár í augun. En lífið bíður með þröngar götur og blóm útá svölum, sumir dagar verða sjálfsagt morandi í sólblómum. Ég held að þrátt fyrir það hvað ég minnka á svona stundum og þrátt fyrir að ég sé orðin pínu lítil núna þá hlakki ég svolítið til, eiginlega svolítið mikið.

Ég trúi ekki hvað fólk var að skrifa fallega hluti í bókina mína en ég veit að mér þykir vænt um þetta fólk.