Útskrifuð:
17. júní var mjög sérstakur dagur. Ég brosti allan daginn og alveg þangað til ég kom heim klukkan hálf 6 að morgni 18. júní.. þá táraðist ég, fékk þvermóðskukast og sofnaði með stúdentshúfuna mína. Dagurinn byrjaði á súper stressi, fór í greiðslu klukkan hálf átta.. þóttist hafa skipulagt þennan morgun jafn vel og Una hefði gert það og var svöl því ég hafði góðan tíma ójá. Nei. Kom úr greiðslu tæpum einum og hálfum tíma síðar eða klukkan tíu mínútur í níu og fór þá í flikk flakki inn í sunnuhlíð í förðun.. þar öskraði ég á förðunarfræðingin að mér þætti leiðinlegt að ég væri svona sein en hún skyldi gjöra svo vel að klína einhverju góðu framan í mig á met tíma ég væri í amazing race fílingi og mætti engan tíma missa. Henni tókst ágætlega til og ég endasentist niðrí skóla á meðan ég samdi við mína ástkæru og yndislegu móður að koma með dressið niðrí skóla. Það gerði hún og ég hljóp eins og antilópa niðrá fatlaðraklósett og sveiflaði mér í gullið. Gekk út og leið eins og ég hefði svissað um raunveruleikaþátt og væri komin í extreme make over.. nema hvað að brjóstin á mér voru ennþá jafn lítil. Minnstu munaði að ég gleymdi að fá mér nelliku og svo þegar ég fékk hana tókst mér næstum því að gera gat á goldenið.. en það slapp sem betur fer til.
Mér leið eins og ég væri fiðrildi sem væri alveg að fara að springa út þegar við brokkuðum út í höll haldandi á hvítu kollunum, sæt og fín í ausandi rigningu. Sem gerði það að verkum að extreme make over lúkkið varð meira og meira að kemur kjúklingur útliti.. eins og hálfstíma greiðsla farinn þangað sem ánamaðkarnir geta étið hana. Svekkjandi.. en mér var alveg sama því ég var að fara að útskrifast. Ótrúlegt! Við gengum inn í höllina í dauðaþögn og mér fannst allt magnast upp inní mér og mér fannst heimurinn stækka á þessu augnabliki.. svo sá ég pabba stoltan með kameruna og klökknaði. Guði sé lof fyrir góðan sessunaut þessa klukkutíma sem við sátum og hlustuðum. Rammislagur, kip, heillaóskir og ráðleggingar fyrir lífið er það sem stendur uppúr þeim ræðum sem voru fluttar. Bergþóru tókst að græta mig þennan morgun með því að minna mig á hvað við höfum haft það gott í þessum skóla og hvað kennararnir séu fyrir okkur eftir þessi ár. Úff.. þegar katrínarnar voru að labba upp á sviðið hver af annarri vissi ég að það færi að koma að mér að útskrifast (þrjú að góðan daginn), hjartað barðist í brjósti mér og ég fylltist hinum fræga ma rembingi þegar ég stormaði yfir sviðið með stúndents plaggið mitt í lúkunum. Vá hvað ég var ánægð.
Palli ljós hefur aldrei látið mig hlægja jafn mikið og þennan dag í rigningunni með marglitu regnhlífina hlaupandi um eins og skúnkur segjandi hinum og þessum að taka sig saman í andlitinu. Ég veit ekki hvað það var en ég sá eitthvað í honum þarna sem ég hef aldrei séð áður.
Veislan var notaleg og myndatakan skemmtileg.
Ég naut mín í höllinni um kvöldið og brosti eins og flóðhestur í afmæli allan tíman. Söng hátt og dansaði dátt. Þetta var yndislegt kvöld sem ég mun seint ef einhver tíman gleyma. Ég elska líka hókí pókí.. eins kjánalegt og það er.
Ég er stúdent og ég er enn á lífi..
Tvítug:
Í gær héldu mamma og pabbi ammælisveislu fyrir mig, yndislegt fólk kom í mín heima hús og mér hefur aldrei liðið betur heldur en þessa kvöldstund. Glöð og sæl í hjarta umlukt fólki sem mér þykir vænt um og því um mig (guð hvað ég er væmin eitthvað núna). Það var ekki bara notalegt heldur líka stórskemmtilegt og ég vona að öllum hafi liðið jafn vel og mér. Mér fannst það allavega. Erlingur grasalæknir verður klárlega að teljast traustur félagi og ég veit það að hann verður í hávegum hafður í framtíðinni.. elli gras ekkert þras (nei koma svo)
En ég á afmæli akkúrat núna, klukkan er 23:50 og fyrir tuttugu árum nákvæmlega kom ég í heiminn nýbúin að gæða mér á hægðablönduðu legvatni og var eitthvað að velta því fyrir mér hvort ég nennti að lifa þessu jarðlífi.. hægðunum var dælt uppúr mér.. oj ætli ég ældi kúk? Sennilega fáir sem hafa gert það. En já ég er ánægð og glöð og ég hlakka til að lifa lengur með kúklaus lungu.
Góð kona sagði mér í dag að guð hefði dansað daginn sem ég fæddist.. ég ætla að reyna að trúa henni og dansa í gegnum lífið.. jafnvel berfætt.


<< Home